Draumahringurinn  gefur þáttakendum í Meistaramóti GKG tækifæri til aukaverðlauna.

Leikfyrirkomulag :

Lægsta skor á hverri spilaðri holu í Meistaramóti GKG er skráð í Draumahringinn, þannig myndast samanlagt besta skor á 18 holum.

T.d. ef leikmaður spilar 1. holuna á 6 höggum fyrsta daginn, 7 höggum annan daginn, 5 höggum þriðja daginn og 3 höggum fjórða daginn þá mun lægsta skorið (3 högg á fjórða degi) gilda í Draumahringnum.

Veitt eru verðlaun fyrir lægsta skor í hverjum flokki mótsins.

Þátttakendur geta skráð sig í Draumahringinn hjá starfsfólki Pro shop GKG áður en keppni í Meistaramóti hefst.

Þáttökugjald:

72 spilaðar holur í Meistaramóti GKG: 1.500,-

54 spilaðar holur í Meistaramóti GKG: 1.000,-

27 spilaðar holur í Meistaramóti GKG:    500.-

Allt Þáttökugjald rennur til Afrekssjóðs GKG