Sveitakeppni drengja 15 ára og yngri er nú óðum að klárast, en úrslitaleikirnir eru í gangi núna. A sveit GR keppir við GV til úrslita og A sveit GK keppir við A sveit GKJ um þriðja sætið. Leikur hefur tafist í dag, en mikill tími hefur farið í bráðabana um úrslit í riðlakeppni. Ekki er búist við að úrslit liggi fyrir fyrr en um níuleytið þegar síðustu leikirnir klárast og fer verðlaunaafhending fram strax á eftir.

 

Smellið hér til að skoða úrslit síðustu umferðar í riðlakeppninni og sjá öll önnur skjöl mótsins.