Kvennanefnd 2011 skipa:

Bergþóra Sigmundsdóttir, formaður                    sími: 565-6529 / 691-0633, bergthora@syslumenn.is; bergthorasig@internet.is, 

Sesselja Magnea Matthíasdóttir, varaformaður sími: 848-7171            sesselja@syslumenn.is

Bryndís Hinriksdóttir                                            sími: 695-0268           binna@torg.is

Sóley Stefánsdóttir                                              sími: 616-1419           gumodd@gmail.com

Hildur Pálmadóttir                                                  sími: 894-1424           hildur.palma@simnet.is

Linda B. Pétursdóttir                                             sími: 861-2939          linda.bjorg.petursdottir@reykjavik.is

Ný kvennanefnd hefur tekið til starfa og er skipuð framangreindum konum. Starf kvennanefndar sumarið 2011 verður með nokkuð hefðbundnum hætti. Kvennaklúbburinn verður með fasta golftíma alla þriðjudaga frá 17. maí til 6. sept., rástímar eru frá kl. 17:00 – 18:50. Í sumar munum við almennt leika 9 holur á þriðjudögum og leikum því í Mýrinni. Í mótum leikum við 18 holur og spilum við þá Leirdalinn að undanskildum mótunum 31. maí og 30. ágúst 2011. Erfitt hefur reynst að setja þriðjudagstímana á netið (sem mót) og því verða konur að skrá sig í þriðjudagstímana með því að senda tölvupóst á gkg@gkg.is eða að hringja í skálann til að skrá sig, s: 897-7773 og 565-7373. Gæta verður að því að skrá kt., grunnforgjöf og vallarforgjöf. Hægt verður að skrá sig á miðvikudegi eftir hádegi til hádegis á leikdag (þriðjudag). Fjórar konur verða saman í holli og tvær skulu vera með grunnforgjöf að 28 og tvær yfir 28. Eins og áður er kvennanefndin með þessu að leitast við að samræma þrjú sjónarmið, þ.e. að konur ráði að einhverju marki með hverri þær spili, reynsla þeirra sem lengra eru komnar skili sér til þeirra sem eru styttra komnar og þá er einnig haft í huga mikilvægi þess að leikhraði okkar verði til fyrirmyndar.

Greitt er fyrir þátttöku í mótum á Vífilsstaðavellinum til m.a. að standa undir kostnaði við verðlaun fyrir árangur og verður gjaldið kr. 1.500, að undanskildu Sólstöðumótinu og mótsgjald á mótinu 31. maí verður kr. 1.000. Þá greiða GKG konur ekki mótsgjald á Vífilsstaðavellinum í vinkvennamóti GKG- og GO kvenna. Við þurfum að greiða kr. 3.000 vallargjald á Urriðavelli þegar við förum þangað og þær greiða kr. 3.000 þegar að þær spila hjá okkur. Þátttökugjald í mótum í Mýrinni og í Leirdalnum verður unnt að greiða í gegnum heimabanka inn á reikning kvennaklúbbsins eða með peningum og verður það tilkynnt nánar fyrir hvert mót. Sami háttur verður með verðlaun á hatta- og kjólamótinu og síðast, þ.e. að hver kona komi með lítinn pakka að verðmæti um kr. 1.000.

Móta- og skemmtidagskrá kvennaklúbbsins sumarið 2011:

            Föstudaginn 13. maí                        Rauðvínskvöldið

            Þriðjudaginn 17. maí                       Fyrsti golfleikdagur 

            Þriðjudaginn 31. maí                       9 holu þriðjudagsmót

            Þriðjudagurinn 7. júní                     Vinkvennamót GKG og GO, Vífilsstaðavöllur     

            Þriðjudaginn 14. júní                       Vinkvennamót GO og GKG, Urriðavöllur

            Föstudagskvöldið 24. júní               Opið sólstöðumót kvenna

            Þriðjudaginn 19. júlí                         18 holu þriðjudagsmót         

            Þriðjudaginn 9. ágúst                       Óvissuferð

            Þriðjudaginn 30. ágúst                     Hatta- og kjólamót

            Laugardaginn 10. september           Lokamót kvennaklúbbsins

 

 

            Fastir golftímar kvenna alla þriðjudaga kl. 17:00-18:50.

Í mótslok fyrirhugaðra móta verður verðlaunaafhending í skála. Lokamót verður 10. september og verða þá afhent afreksverðlaun til þeirrar konu sem náð hefur flestum punktum yfir sumarið samkvæmt innlögðum skorkortum í skipulögðum leiktíma kvennaklúbbsins og framangreindum mótum. Til grundvallar eru lögð fimm bestu skorkortin á 9 holum. Munið að skila inn skorkortum í sérmerktan kassa kvennaklúbbsins með nafni, kt. og grunnforgjöf.

Við munum leitast við að koma fréttum úr starfinu á heimasíðu GKG og myndum á myndasíðu klúbbsins.

Við hefjum tímabilið með hinu árlega “Rauðvínskvöldi” kvennaklúbbsins og verður það eins og að framan greinir föstudaginn 13. maí í golfskálanum.

Kvennanefnd áskilur sér rétt til breytinga á ofanrituðu skipulagi ef nauðsyn krefur.

 

Með golfkveðju

Garðabæ 12. apríl 2011

f.h. kvennanefndar

Bergþóra Sigmundsdóttir

Sesselja Magnea Matthíasdóttir