Meistaramót GKG hefst á sunnudag, en þetta er aðal golfhátíðin okkar yfir sumarið. Því falla allar æfingar barna- og unglingastarfsins niður meðan á mótinu stendur.

Við viljum hvetja alla sem komin eru með forgjöf að taka þátt. Skráning fer fram undir mótaskránni á www.golf.is og í ProShop GKG. Greiða þarf mótsgjald við skráningu.

Mælum eindregið með að krakkarnir komi upp á völl og æfi sig sjálf á æfingasvæðinu eða litlu völlunum. Einnig er upplagt að fylgjast með okkar bestu kylfingum leika í Meistaramótinu (miðvikudag til laugardag í næstu viku).

Upplýsingar um mótið, flokkaskiptingu, keppnisdaga ofl. má finna hér.

Með bestu kveðjum,

Úlfar Jónsson

Íþróttastjóri GKG