Æfingatafla og hópaskipan fyrir sumaræfingarnar 2010 er nú tilbúin og er hægt að smella hér til að skoða nánar. Einnig er hægt að skoða dagatal barna- og unglingastarfsins með helstu viðburðum hér.
2. júlí var haldinn foreldrafundur og má sjá helstu punktana sem voru kynntir hér fyrir neðan:
Hér eru nokkrir punktar um það helsta sem var farið yfir.
- Gunnar Jónsson (form. unglinganefndar) opnaði fundinn og sagði m.a. frá því að unglinganefnd og afreksnefnd hefði verið sameinuð í íþróttanefnd m.a. til að samþátta barna- og unglingastarfið með afreksstarfinu.
- Gunnar Páll (formaður afreksnefndar) kynnti Gæðahandbók GKG sem var gefin út í vor. Eintak var sent á þennan netfangalista í seinustu viku. Úlfar fór yfir þann hluta handbókarinnar er snýr að þjálfun og skipulagi. Hvet ykkur til að skoða bókina vel og koma með athugasemdir, þetta er 1. útgáfa og hún verður uppfærð árlega.
Rætt var um foreldrastarfið og leiðir til að efla það. Golfið er nokkuð frábrugðið hópíþróttunum en við viljum gjarnan efla félagslega hlutann meðal barnanna og einnig meðal foreldra. Við auglýsum því eftir áhugasömum til að koma í foreldraráð og vísa ég í Gæðahandbókina á bls. 7 varðandi markmið Foreldrastarfs.
- Dagatal með helstu viðburðum sumarsins.
- Þjálfarar sumarsins kynntir. Gestur Gunnarsson, Guðjón Henning Hilmarsson, Haukur Már Ólafsson, Sigmundur Einar Másson, Birgir Leifur Hafþórsson, Haraldur Þórðarson og Derrick Moore. Afreksstúlkur GKG munu koma að spilæfingum stúlkna til að ýta enn frekar undir áhuga þeirra. Undirritaður mun ekki sinna þjálfun beint í sumar en fylgist með og aðstoðar með öðrum hætti.
- Varðandi keppnir þá eru mismunandi leiðir sem henta vonandi öllum. Sjá ýmsar leiðir hér fyrir neðan.
Keppnir/leikir á æfingum fyrir þau sem eru að byrja og/eða treysta sér ekki í mót.
Innanfélagsmót GKG
Svalamótaröðin fyrir 12 ára og yngri, haldið í Mýrinni. Smelltu hér til að sjá uppl.
Unglingamótaröð GKG. Haldið á Leirdalsvelli. Smelltu hér til að sjá uppl.
Meistaramót GKG. Haldið á Leirdalsvelli. Smelltu hér til að sjá uppl. Mmótið er fyrir þau sem hafa lækkað forgjöf sína.
Opin unglingamót
US Kids mótaröðin fyrir 12 ára og yngri. Sjá hér lýsingu á þessari skemmtilegu mótaröð.
Áskorendamótaröð GSÍ. Eins dags mót fyrir þau sem eru byrjuð að lækka forgjöf og vilja auka keppnisreynslu sína. Keppt í flokkum 14 ára og yngri, 15-16 ára og 17-18 ára. Stökkpallur yfir í Arionbankamótaröðina.
Arionbanka mótaröð GSÍ. Tveggja daga mót fyrir forgjafarlægri kylfinga. Keppt í sömu flokkum og í Áskorendamótaröðinni.
Sjá dagssetningar í dagatalinu.
Ath. að aldur miðast við fæðingarár.
Endilega hafið samband ef ykkur vantar einhverjar upplýsingar. Best er að ná í mig frá kl. 8:30-13.
Bestu kveðjur,