Birgir Leifur sagði í samtali við GKG.IS að hann hefði leikið vel í dag og hitt 16 flatir (89%).
"Mér leið ákaflega vel yfir boltanum í dag. Ég var tiltölulega ósáttur við hvernig ég nýtti mér PAR5 brautirnar á fyrri 9 holunum, en ekkert sem ég hef áhyggjur af. Völlurinn sem við leikum á er í toppstandi auk þess sem aðstæður eru eins góðar og best verður á kosið 26°C hiti og sólskin" sagði Birgir Leifur að loknu 1. keppnisdegi. Birgir á rástíma klukkan 9:30 í fyrramálið og byrjar á 1. teig. Við óskum Bigga góðs gengis á morgun og fylgjumst að sjálfsögðu með hér á gkg.is.