Birgir Leifur fékk óvænt inni á Scottish Challenge eftir góðan árangur í síðasta móti á Áskorendamótaröðinni. Hann átti ekki von á að komast þar inn en kom síðar í ljós honum til ánægju að árangur hans á Spáni tryggði honum þátttökurétt á þessu móti.
Birgir Leifur leikur í dag með englendingunum Mark Smith sem er í 196. sæti styrkleikalistans og Cris Gane sem er í 22. sæti. Birgir Leifur náði að hækka sig á styrkleikalistanum upp í 146. sæti. Hann ásamt englendingunum á teig klukkan 12:00 á hádegi í dag af 1. teig.