Birgir Leifur er sem stendur fyrir þennan dag í 77. – 91. sæti og þarf því að spýta í lófana til þess að komast í gegn um niðurskurðinn sem verður eftir daginn í dag.

 Birgir Leifur sagði í viðtali við GKG.IS í morgun að hann hefði ekki verið nægjanlega einbeittur við upphaf mótsins og því farið brösulega af stað. Hann hafi hinsvegar verið kominn með góða tilfinningu strax á seinni hlutanum og væri heilt yfir svona þokkalega sáttur. Birgir Leifur hitti 15 flatir (83%), 11 brautir (79%) og notaði 33 pútt á hringnum. Það virðist því vera að okkar aður eigi enn, þó nokkuð inni og vonandi nær hann að ná því allra besta fram í dag.