Birgir Leifur mun hefja leik á Telenet Trophy, á Limburg golfvellinum í Belgíu klukkan 8:10 í fyrramálið. Hann mun hefja leik á 1. teig ásamt frakkanum David Olivier sem náði ekki í gegn um niðurskurð á mótinu um síðustu helgi og spánverjanum Rafael Cabrera Bello sem endaði í 3. sæti á síðasta móti sem fram fór í Monza.
Olivier er sem stendur fyrir þetta mót í 86. sæti á styrkleikalista Challenge mótaraðarinnar og Bello í því 25. Birgir Leifur hefur ekki enn náð að setja mark sitt á listann. Við munum að sjálfsögðu fylgjast með gangi mála hjá Birgi og óskum okkar manni góðs gengis.