
Nýlega lauk púttmótaröð GKG, en alls voru leiknar tíu umferðir í vetur, og töldu fjórir bestu hringirnir. Þátttaka var til styrktar afreksstarfi GKG, og þökkum við öllum kærlega fyrir stuðninginn.
Úrslit urðu eftirfarandi:
1. Emil Þór Ragnarsson – 98 pútt (24,5 pútt að m.tali per hring)
2. Þorsteinn Reynir Þórsson – 99 pútt
3.-4. Sæmundur Melstað – 104 pútt
3.-4. Gunnar Árnason – 104 pútt
Besta skor kvenna:
María M. Guðnadóttir – 111 pútt
Verðlaunahafar hljóta veglegar ostakörfur frá Mjólkursamsölunni.