Eygló Myrra Óskarsdóttir klúbbmeistari kvenna 2006 og stigameistari í unglingamótaröð KB banka í flokki 14 – 15 ára sigraði kvennaflokkinn á Faldo Series Iceland Championship sem fram fór á Korpúlfsstaðavelli nú í vikunni. Allar stelpurnar kepptu í einum flokki, yngri en 18 ára og var það Eygló Myrra úr GKG eins og áður sagði sem varð í fyrsta sæti á 240 höggum, einu færra en Valdís Þóra Jónsdóttir úr Leyni sem nýlega jafnaði vallarmet Ragnhildar Sigurðardóttur á Garðavelli.
Nick Faldo sjálfur mætti til Íslands til að afhenda verðlaunin á mótinu sem eru í glæsilegri kantinum því sigurvegararnir í hverjum flokki fá að fara út til Englands að keppa á Faldo Series Final, sem fram fer á Celtic Manor vellinum í lok október.
Helgi Ingimundarson endaði í 2. sæti í flokki 15 ára og yngri einungis 1 höggi á eftir sigurvegaranum Andra Má Óskarssyni úr GHR.
Við óskum krökkunum til hamingju með glæsilegan árangur.