Fatnaður fyrir börn og unglinga í GKG – mátunardagur á miðvikudag milli 18-20 í golfskála GKG

 

Boðið verður uppá mátun á nýjum einkennisklæðnaði GKG kylfinga á miðvikudaginn n.k. milli 18-20 í golfskálanum okkar. Um er að ræða treyjur og boli frá Puma, sem henta einnig vel við aðra iðkun en golf. Við getum boðið fatnaðinn á góðu verði til allra barna og unglinga sem æfa hjá GKG en gaman væri að sjá sem flesta í liðsbúningi við æfingar og keppni, líkt og í öðrum íþróttum.

 

Stærðir eru S, M, L og XL. Barna/unglingastærðir eru niður í 140.

 

Allar nánari upplýsingar gefa Sigmundur (868 2772, simmi@simmimasson.com) og/eða Birgir Leifur (663 3500, biggigolf@hotmail.com).

 

Bestu kveðjur,

Úlfar