Mikið af sjálfboðaliðum vinna við meistaramót GKG. Meðal annarra eru svokallaðir forecaddies eða framverðir sem gefa kylfingum merki um það hvort bolti þeirra sé í leik eða ekki. Ólöf Ásgeirsdóttir stóð vaktina á 14 braut með óvæntum liðsauka, en uglupar hefur tekið sér bólfestu við fjórtándu brautina og sitja oft á tíðum þolinmóðar við vallarmörk 14. brautar, rétt eins og þær séu vakandi yfir boltum kylfinga. Nú í morgun sá Axel aðstoðarvallastjóri þrjár uglur í hóp og því virðist sem parið sé búið að koma sér upp ungum.

IMG_0153

IMG_0139

IMG_0140

IMG_0076