Föstudaginn 4. maí s.l. var Rauðvínskvöld GKG-kvenna. Mættu 46 konur og skemmtu sér frábærlega. Heiðar veitingamaður hjá GKG sá um matinn og voru veislugestir mjög ánægðir með hann. GKG-bandið lék fyrir gesti við frábærar undirtektir. Konur í GKG sýndu föt frá Hole in one. Ljóst er að konur koma vel undan vetri og munu verða virkar í golfinu í sumar.

KYNNING HJÁ HOLE IN ONE

Hole in one býður öllum konum í GKG að koma í verslunina að Bæjarlind 1, Kópavogi, þriðjudagskvöldið 8. maí 2007 frá kl. 20 til 22, sérstaklega til að sjá nýju línuna í golffatnaði. Verslunin veitir öllum konum í GKG afslátt þetta kvöld. Mætum eftir kvennaspilið á þriðjudagskvöldið í Hole in one.

Golfkveðjur Kvennanefndin