Á morgun miðvikudaginn 21. okt munum við loka kópavogshluta Leirdalsvallar, holum 4 til og með 12 þetta árið.
En þar sem langtíma spáin er ekki glæsileg og töluvert frost í kortunum frá og með laugardeginum 24 okt þá eru allar líkur á því að við lokum neðri hluta vallarins föstudaginn 23 okt.
Staðan á veðurspánni verður tekin aftur á fimmtudagsmorguninn og þá verður tekin endanleg ákvörðun um lokun og hún tilkynnt hér.
Við viljum að sjálfsögðu benda á að vetrarvöllurinn verður opinn í allan vetur og liggur hann um mýrina að venju.

Kveðja
Vallarstjóri.