GKG er í 8.-9. sæti eftir tvo keppnisdaga af þremur á EM klúbbliða sem fer fram á Kýpur. Liðið er samtals á einu höggi undir pari, en Frakkar eru efstir í mótinu á 24 höggum undir pari. Alfreð Brynjar Kristinsson lék á 70 höggum í dag og er á 5 höggum undir pari í heildina og í 6. sæti í einstaklingskeppninni. Kjartan Dór Kjartansson lék á 74 höggum í dag en Guðjón Henning Hilmarsson taldi ekki í dag, en hann var á 77 höggum.

Mótinu lýkur á morgun og við sendum strákunum okkar baráttukveðjur,

Hægt er að sjá stöðuna með því að smella hér.