Hatta- og kjólamótið 30. ágúst nk.

Hatta- og kjólamót GKGkvenna verður haldið
þriðjudaginn 30. ágúst nk. Mótið er punktamót með leikforgjöf 40. Leiknar verða
9 holur á Mýrinni. GKGkonur eru hvattar til að mæta í kjólum, með hatta og með góða
skapið, eins og venjulega. Innritun fer fram á golf.is. Ekkert keppnisgjald er
í mótið en hver kona sem tekur þátt í mótinu kemur með einn vinning á um kr.
1.000. (Ef gleymist að koma með vinning er hægt að kaupa eitthvað í PROshop).
Best klædda konan fær viðurkenningu og einnig er veitt viðurkenning fyrir
flottasta hattinn. Viðurkenningarnar geta ekki fallið í hlut sömu konu.

Minnum á lokamótið og lokahófið sem verður sunnudaginn
11. september nk. og hefst lokahófið kl. 18:30. Ath. breytta dagsetningu
mótsins og lokahófsins miðað við áætlun okkar. Nánari upplýsingar verða settar
á netið síðar.

Kvennanefndin