Um síðustu helgi fór Hjóna og para keppni GKG fram og er óhætt að segja að þetta fyrsta mót sinnar tegundar stimplaði sig inn sem hefð og það með afgerandi hætti. Færri komust að en vildu og verður það mikil bragabót að fá nýja húsið þannig að allir komist að á næsta ári.
Spilaður var betri bolti og eru úrslitin eftirfarandi:
- Sóveig Steinsson og Gísli Sigurgeirsson 46 punktar ( Flug með Icelandair til Evrópu )
- Kristján Hilmarsson og Sesselja M Matthíasdóttir 45 punkgar ( Grill frá N1 )
- Jón Steinar Ingólfsson og Freyja Sveinsdóttir ( 20.000 kr. rómantísk innkaupaferð hjá N1)
Nándarverðlaun voru eftirfarandi:
2. hola, Úlfar Jónsson, 83 cm
4. hola, Guðrún Dröfn 308 cm
9. hola, Jóhann Hreiðarsson 489 cm
11. hola, Þuríður Valdimarsdóttir 180 cm
13. hola, Gísli Sigurgeirsson, 560 cm
17. hola, Úlfar Jónsson 302 cm (gaf verðlaun í útdrátt)
Mikið stuð var um kvöldið og skemmtinefnd GKG klikaði ekki því hún fékk hljómsveitina Lunda til að skemmta keppendum undir glæsilegum veislukvöldverði í “samkomusal” GKG. Sjá annars myndir á facebook síðu GKG.