Fyrsta umferð Íslandsmót unglinga í holukeppni er í þann mund að hefjast á Vífilsstaðavelli. Í gær var skorið niður í 16 í hverjum flokki en þeir leika holukeppni í dag. Athygli vakti að Guðni Fannar Carrico sem er búinn að vera einn af sterkustu kylfingunum í 13 ára og yngri í sumar fékk frávísun. Guðni skrifaði óviljandi undir of lágt skor en benti sjálfur mótstjórn á mistökin. Mótstjórn vill þakka Guðna fyrir drengilega framkomu og mættu margir kylfingar ungir sem aldnir taka sér hann til fyrirmyndar.
Við hvetjum alla til þess að koma um helgina og fylgjast með efnilegustu kylfingum landsins etja kappi við hvorn annan og golfvöllinn.