Sannkallað Íslendingamót fór fram í háskólagolfinu á Oakbourne vellinum í Lafayette í Louisiana, en Haraldur Franklin Magnus og okkar maður úr GKG, Ragnar Már Garðarsson keppa fyrir University of Louisiana – Lafayette, sem hélt þetta háskólamót í 31. sinn.

Að auki kepptu Bjarki Pétursson úr GB og Gísli Sveinbergsson úr GK fyrir sinn skóla, Kent State frá Ohio.

Haraldur lék á 72 72 74 218 og endaði í 17. sæti
Bjarki  71 76 72 219 og endaði í 19. sæti
Ragnar 79 68 76 223 og endaði í 39. sæti
Gisli 75 68 81 224 og endaði í 44. sæti

University of Illinois sigraði í liðakeppninni en UL-Lafayette endaði í 8. sæti og Kent State í 6. sæti.

Hér er hægt að skoða lokastöðuna í einstaklingskeppninni.

Hér er hægt að skoða lokastöðuna í liðakeppninni.