Meistaraflokkarnir hófu keppni í gær í Meistaramótinu. Því miður þurfti Birgir Leifur Hafþórsson frá að hverfa, en vegna þess hve vel hann hefur spilað á áskorendamótaröðinni, þá fékk hann inni í móti sem haldið er í Þýskalandi. Meistaramótið er engu að síður firnasterkt og verður gaman að fylgjast með keppni þeirra bestu nú næstu dagana.
Eftir fyrsta dag mótsins leiðir nýgræðingurinn Ólafur B. Loftsson karlaflokkinn en hann spilaði Leirdalsvöllinn undir mjög erfiðum kringumstæðum á einum undir pari. Fast á hæla hans fylgir Aron Snær Júlíusson en hann lék á parinu. Fimm höggum á eftir Ólafi eru þeir Emil Þór Ragnarsson, Yngvi Sigurjónsson og Haukur Már Ólafsson. Sigmundur Einar Másson er á sex höggum yfir pari og þeir Björgvin Smári Kristjánsson og Ragnar Már Garðarsson eru á 7 höggum undir pari.
Ragna Björk Ólafsdóttir spilaði best allra í kvennaflokki. var á 76 höggum sem er feiknagóður árangur í ljósi þess að hún hefur lítið getað spilað golf undanfarið enda nýbökuð tvíburamamma. Þær María Guðnadóttir og Gunnhildur Kristjánsdóttir eru jafnar í öðru og þriðja sæti en þær spiluðu báðar á 84 höggum.
Hægt er að fylgjast með stöðu í öllum flokkum með því að smella hér.