En Ottó hefur ákveðið að reyna fyrir sér í atvinnumennskunni. Leikfyrirkomulag mótsins verður höggleikur með Texas Scramble fyrirkomulagi og verða glæsilega verðlaun í boði og að sjálfsögðu verður leikið uppí Leirdal.
Við viljum benda kylfingum á að enn er verið að ganga frá glompum og öðrum atriðum Í Leirdal og biðjum við kylfinga að hafa það í huga þegar leikið er. Brautir eru ekki fullgrónar og því verða færslur leyfðar á brautum auk þess sem farið verður yfir völlinn og staðarreglur uppfærðar með tilliti til ástand vallarins. Þessi opnun er ekki síður gerð með það í huga að kylfingar fái örlítið forskot á sæluna og verði búnir að fara um dalinn þegar völlurinn opnar næsta vor.