Hér má sjá upplýsingar um helstu mót sem börnum og unglingum stendur til boða til þátttöku í sumarið 2011.
Innanfélagsmót
Svalamótaröðin
7.júlí SVALA mótaröð GKG 12 ára og yngri (2) Skráningu lýkur 5. júlí
21.júlí SVALA mótaröð GKG 12 ára og yngri (3) Skráningu lýkur 19. júlí
11.ágúst SVALA mótaröð GKG 12 ára og yngri (4) Skráningu lýkur 9. ágúst
Fyrir 12 ára og yngri (fædd 1999 og síðar), 9 holu mót haldin í Mýrinni. Fyrir þau sem eru að stíga fyrstu skrefin á vellinum.
Skráning í mótin og upplýsingar eru hér.
Unglingamótaröðin
5.júlí Unglingarmótaröð GKG (2) Skráningu lýkur 3. júlí
19.júlí Unglingarmótaröð GKG (3) Skráningu lýkur 17. júlí
2.ágúst Unglingarmótaröð GKG (4) Skráningu lýkur 31. júlí
16.ágúst Unglingarmótaröð GKG (5) Skráningu lýkur 14. júlí
18 holu mót haldin á Leirdalsvelli. Fyrir þau sem eru vön að spila og farin að lækka forgjöfina.
Skráning í mótin og upplýsingar eru hér.
9.júlí Niðjamót GKG
Niðjamótið er liðakeppni þar sem hvert tveggja manna lið er þannig skipað að annar liðsmaðurinn er afkomandi hins. Ágóði af Niðjamótinu rennur í ferðasjóð afreksunglinga GKG, en síðustu fjögur ár hafa afreksunglingar GKG farið í æfingaferð til útlanda í mars/apríl.
Skráning og upplýsingar eru á golf.is
10.-12.júlí Meistaramót GKG
Meistaramót fyrir 12 ára og yngri í Mýrinni
Unglingar 13-14 ára. Keppt á Leirdalsvelli
Unglingar 15-16 ára. Keppt á Leirdalsvelli
Unglingar 17-18 ára. Keppt á Leirdalsvelli
Skráningu lýkur 7. júlí. Skráning og upplýsingar eru á golf.is
Opin mót á vegum GSÍ
Arionbanka mótaröð GSÍ
26.-28.júlí Íslandsmót í holukeppni, Golfkl. Borgarness. Skráningu lýkur 21. júlí
6.-8. ágúst Íslandsmót í höggleik, GR-Grafarholt. Skráningu lýkur 3. ágúst
27.-28. ágúst Arionbankamótaröð Golfkl. Borgarness. Skráningu lýkur 22. ágúst
Arionbankamótaröðin er fyrir forgjafarlægri kylfinga. Þátttökuréttur ræðst af forgjöf kylfinga sem skráðir eru í hverjum flokki.
Keppt í flokkum 14 ára og yngri, 15-16 ára og 17-18 ára.
Áskorendamótaröð GSÍ
6. ágúst Áskorendamót, Golfkl. Setbergs. Skráningu lýkur 4. ágúst
13. ágúst Áskorendamót, Golfkl. Kjölur. Skráningu lýkur 12. ágúst
27. ágúst Áskorendamót, Golfkl. Hveragerðis. Skráningu lýkur 25. ágúst
Eins dags mót fyrir þau sem eru byrjuð að lækka forgjöf og vilja auka keppnisreynslu sína. Keppt í sömu flokkum og í Arionbanka mótaröðinni. Stökkpallur yfir í Arionbankamótaröðina.