Nú á dögunum endurnýjuðum við samstarfsamning okkar við N1. N1 hefur verið einn af þremur lykilstyrktaraðilum GKG undanfarin ár.

Að sögn Hinriks Arnar Bjarnasonar framkvæmdastjóra fyrirtækjasviðs þá leggur N1 kapp við að styrkja íþrótta- og æskulýðsstarf um land allt og er stolt af því að geta staðið þétt við bakið á barna- og unglingastarfi GKG.

Allt frá stofnun GKG hefur verið lögð mikil áhersla á barna- og unglingastarf. Slík nálgun er forsendan fyrir því að fjölga iðkendum í íþróttinni og hefur leitt af sér að í GKG  eru um 600 börn og unglingar sem nýta sér þjónustu GKG á hverju ári. Þetta er um þriðjungur allra barna sem iðka golfíþróttina á Íslandi og fleiri krakkar en í öllum hinum golfklúbbunum á höfuðborgarsvæðinu samanlagt. Þessi fjöldi barna og unglinga vekur verulega eftirtekt í Evrópu en sem dæmi má nefna að stærsti golfklúbbur Danmerkur er með 180 börn og unglinga.

Stuðningur fyrirtækja á borð við N1 hefur leitt af sér að GKG hefur getað aukið enn frekar við þjónustu við börn og unglinga en dæmi um slíkt er að GKG sendi í fyrsta sinn fimm sveitir á Íslandsmót golfklúbba 15 ára og yngri í fyrra.

Við hvetjum félagsmenn til að tengja N1 kortin sín við GKG, með þeim hætti er þeim tryggður afsláttur auk þess sem króna af hverju lítra rennur beint til GKG.