Í næstu viku, 22.-25. ágúst, hefjast ný námskeið hjá Hlöðveri PGA kennara. Námskeiðin henta breiðum hópi kylfinga, allt frá háforgjafarkylfingum til lengra komna. Námskeiðin eru opin öllum, ekki einungis félagsmönnum GKG. Hópastærð er takmörkuð við 5 manns þannig að hver og einn fær persónulega nálgun.

Mikill sveigjanleiki er hvað varðar skráningu, en það er hægt að skrá sig í eins skiptis námskeið, eða skrá sig þess vegna á öll fjögur skiptin sem eru í boði. Hvert skipti kostar kr. 2.500. Skráning er hjá ulfar@gkg.is

Hér fyrir neðan má sjá yfirlit fyrir námskeiðin sem eru í boði í næstu viku. Námskeiðin eru blönduð kk og kvk:

Pútt- og vippnámskeið – áhersla á grunnatriði pútta og vippa og góðar æfingar.
22. ágúst kl 17 – 18, kl 18 – 19, kl 19 – 20

Glompunámskeið – áhersla á grunnatriði högga úr glompum og góðar æfingar.
23. ágúst kl 17 – 18, kl 18 – 19, kl 19 – 20.

Sveiflunámskeið – áhersla á lengri högg með millijárnum, brautartrjám og dræver.
24. ágúst kl 17 – 18, kl 18 – 19, kl 19 – 20.

Sveiflunámskeið – áhersla á lengri högg með millijárnum, brautartrjám og dræver.
25. ágúst kl 17 – 18, kl 18 – 19, kl 19 – 20.

Kennari er Hlöðver Guðnason, PGA golfkennari og GKG meðlimur (hlodverg@simnet.is / 861 1407).

Greitt skal áður en námskeið hefst.

Greiðsluupplýsingar GKG: Banki 0318 – 26 – 176, kt. 650394-2089
Skýring: v/námskeið og nafn. Senda kvittun á ulfar@gkg.is

Kennsla og æfingaboltar eru innifalnir. Kennslan fer fram á æfingasvæðum GKG, mæting ávallt við pallana við áhaldahúsið.

Nánari upplýsingar gefur undirritaður.

Úlfar Jónsson
Íþróttastjóri GKG
ulfar@gkg.is
8629204