Nýjung – punktamót GKG – keppt á öllum mánudögum í sumar – skráning hafin

Punktamót GKG er nýtt innanfélagsmót fyrir alla félagsmenn. Í Punktamóti GKG á hinn almenni kylfingur góða möguleika á því að hljóta titilinn Punktameistari GKG. Hér eiga því kylfingar jafnan möguleika á sigri, óháð kyni, aldri eða forgjöf.

Árið 2015 verður spilað á mánudögum og stendur mótið yfir stóran hluta sumarsins. Skráning verður á golf.is og verður boðið upp á rástíma fyrir hádegi og síðdegis hvern dag. Til að skrá sig á mótaröðina fer kylfingur inn á www.golf.is, skárir sig inn og smellir á „Mótaskrá“ (hlekkur við hliðinni á mynd). Þá kemur listi upp með mótum sumarsins og velur hann næsta punktamót og skráir sig í holl. Opnað verður fyrir skráningu 6 dögum fyrir hvern mótsdag eða þriðjudagsmorgni kl. 08:00. Athugið að við erum búin að opna fyrir skráningu a fyrsta dag mótsins sem er 8. júli.

Hver leikmaður getur leikið allt að 10 hringi en aðeins 4 bestu hringirnir telja.
Vegleg verðlaun verða veitt fyrir efstu þrjú sætin í lokahófi þar sem fráfarandi punktameistari eða formaður krýnir nýjan punktameistara.
Verðlaunaskrá 2015 er:

  1. Grill frá N1
  2. 20.000 kr. Vöruúttekt frá N1
  3. 10.000 kr. Vöruúttekt frá N1

Mótsgjald er 1.500 kr. fyrir hvert skipti og fá keppendur teiggjöf í hvert skipti upp á 1.000 kr. úttekt hjá Sigga vert sem býður upp á máltíð að leik loknum. Að teknu tilliti til teiggjafarinnar er mótsgjaldið því aðeins 500 kr. í hvert skipti. Mótsgjaldið er greitt í Proshop þar sem leikmenn fá sérmerkt skorkort fyrir hvern hring.
Fyrsta umferð punktamóts GKG 2015 fer fram mánudaginn 8. júní og verður keppt alla mánudaga fram í ágúst, nema 28. júní vegna meistaramótsins, samtals 10 mánudaga í sumar. Síðasti keppnisdagur verður 17. ágúst og lýkur honum með lokahófi og verðlaunaafhendingu.

Mótsstjóri árið 2015 er Eggert Ólafsson.

Allar nánari upplýsingar má finna með því að smella hér.

By |24.04.2015|Categories: Fréttir, Uncategorized|

Share This Story, Choose Your Platform!

Go to Top