Nú styttist í að nýliðanámskeiðin hefjist og eru þau ætluð ætluð nýjum félögum sem eru að stíga fyrstu skrefin í golfinu og hafa ekki fengið forgjöf. Nýjir félagar sem koma úr öðrum klúbbum og hafa fengið forgjöf eða áður tekið þátt á nýliðanámskeiði á vegum golfklúbbs, þurfa ekki að taka námskeiðið. Gjald per þátttakanda er kr. 6.000 og er innifalið í því tæknikennsla, spilkennsla og reglufræðsla samkvæmt neðangreindu skipulagi, auk námskeiðsgagna. Auk þessa fá þátttakendur fræðslu um almenna starfsemi GKG og golfvelli félagsins, og notkun golf.is vegna skráningu rástíma og utanumhalds um forgjöf.
Skráning fer fram á neðst á þessari síðu.
Kennarar GKG, Úlfar Jónsson, Derrick Moore og Hlynur Þór Haraldsson sjá um námskeiðin. Kjartan Bjarnason, yfirdómari GKG og Landsdómari sér um regluhluta námskeiðsins.
Frekari upplýsingar veitir undirritaður.
Með bestu kveðjum,
Úlfar Jónsson
Íþróttastjóri GKG
ulfar@gkg.is
S: 862 9204
Eftirfarandi dagssetningar eru í boði, og er hámarksfjöldi á hverju námskeiði 16 manns.
Smelltu hér til að skrá þig í hóp 1