Nú styttist í að nýliðanámskeiðin hefjist og eru þau ætluð ætluð nýjum félögum sem eru að stíga fyrstu skrefin í golfinu og hafa ekki fengið forgjöf. Nýjir félagar sem koma úr öðrum klúbbum og hafa fengið forgjöf eða áður tekið þátt á nýliðanámskeiði á vegum golfklúbbs, þurfa ekki að taka námskeiðið. Þessi námskeið eru ekki ætluð börnum, en við bendum á æfingar fyrir börn og unglinga. Gjald per þátttakanda er kr. 6.000 og er innifalið í því tæknikennsla, spilkennsla og reglufræðsla samkvæmt neðangreindu skipulagi, auk námskeiðsgagna. Kennarar GKG, Úlfar Jónsson, Derrick Moore og Haukur Már Ólafsson sjá um námskeiðin. Kjartan Bjarnason, R&A alþjóðadómari, sér um regluhluta námskeiðsins.
Eftirfarandi dagssetningar eru í boði, og er hámarksfjöldi á hverju námskeiði 16 manns.
| Hópur 1 | Dags. | Tími | Mæting | Kennarar |
|---|---|---|---|---|
| Sveifla og stutta spil | 19. maí | 17 – 19 | GKG skáli | PGA kennarar |
| Reglufundur | 20. maí | 20-22 | GKG skáli | Kjartan |
| Spilkennsla | 21.maí | 17-19 | GKG skáli | PGA kennarar |
| Hópur 2 | Dags. | Tími | Mæting | Kennarar |
|---|---|---|---|---|
| Sveifla og stutta spil | 2. júní | 17 – 19 | GKG skáli | PGA kennarar |
| Reglufundur | 3. júní | 20 – 22 | GKG skáli | Kjartan |
| Spilkennsla | 4. júní | 17 – 19 | GKG skáli | PGA kennarar |
Frekari upplýsingar veitir undirritaður.
Með bestu kveðjum,
Úlfar Jónsson
Íþróttastjóri GKG
ulfar@gkg.is
S: 862 9204