Ekki hefur verið ákveðið hvenær Leirdalurinn verður opnaður. Það verður þó á tímabilinu 9. – 30. júní. Mikil bleyta var á svæðinu í vetur og nokkrir brautarhlutar fóru illa. Vallarstarfsmenn vinna hörðum höndum að því að setja skeljasand í glompur ,laga til göngustíga og setja upp brautamerkingar. Sæluhúsi hefur verið komið fyrir á vellinum. Verið er að innrétta húsið og ganga frá í kringum það. Flatir vallarins líta vel út en ljúka þarf frágangi á nokkrum öðrum svæðum.
Leirdalurinn verður ekki opnaður fyrr en hann er að fullu tilbúinn til golfleiks. Allt mun það fara eftir veðri og hvernig vallarstarfsmönnum gengur að ljúka verkefnum á vellinum.
Félagsmenn þurfa að gera sér grein fyrir að það er fleira sem hangir á spýtunni en bara að opna 9 holur í Leirdal. Með því eignast GKG nýjan 18 holu golfvöll. Einnig nýjan 9 holu golfvöll í fullri lengd og verður fyrsta golfsvæðið á Íslandi með 27 holur í fullri lengd.
Nánar síðar.
Framkvæmdastjóri.