Næstkomandi laugardag 21.mai opnar Leirdalsvöllur fyrir kylfinga. Sökum mikils kulda og framkvæmda við sjöttu og tíundu flatirnar hefur verið ákveðið að fella niður Opnunarmótið sem halda átti þennan dag.
Völlurinn opnar uppúr þennan dag og biðjum við alla kylfinga að ganga sérstaklega vel um völlinn og sýna svæðum þar sem framkvæmdir hafa staðið yfir mikla virðingu. Í þessum kulda sem er í kortunum er gróður mjög við kvæmur.