
Staðan í heildarkeppninni
PING HELGARMÓTARÖÐ GKG
PING helgarmótaröðin – lokaúrslit!
Síðan í október höfum við boðið félagsfólki upp á helgarmótaröð í boði PING og hefur hefur þátttakan verið frábær. Um 70-75 hafa tekið þátt í hverju móti og alls tóku 35 konur og 86 karlar þátt í a.m.k. einu móti.
Þrjú bestu mótin af níu töldu í heildarkeppninni og urðu úrslitin svohljóðandi:
Karlaflokkur
1. Björn Sigurðsson 65 punktar
2. Elmar Freyr Elíasson “Elmartrainer” 62 punktar
3. Nirut Thongpraphan 60 punktar
Siggi Hlö var einnig með 60 punkta en Nirut tekur 3. sætið þar sem hann var með betri árangur á 4. hring.
Kvennaflokkur
1. Ásta Ólafsdóttir 71 punktur
2. Ingibjörg Hinriksdóttir “Ingibjörg 63” 63 punktar
3. Björk Þorgeirsdóttir “BjöggaTogga” 63 punktar
Einnig með 63 punkta voru Ásgerður Gísladóttir “Ása Gísla” og Fríða Agnarsdóttir og þurfti að fara í 6. hringinn til að skera úr um úrslit en þá var Björk með 17 punkta en Ása með 15 punkta.
Heildarúrslit í kvennaflokki má finna hér.
Heildarúrslit í karlaflokki má finna hér.
Úrslit í seinasta mótinu sjást á myndinni hér fyrir neðan.
Glæsilega verðlaun í heildarkeppninni voru í boði PING á Íslandi.
1. Mr. Ping golfhermapoki að verðmæti 29.900 kr.
2. Ping bakpoki að verðmæti 14.900 kr.
3. Ping boltataska að verðmæti 7.900 kr.
Haft verður samband við vinningshafa þegar vinningar eru tilbúnir til afhendingar.
Við óskum öllum verðlaunahöfum til hamingju með árangurinn og öllum þátttakendum þökkum við kærlega fyrir þátttökuna.
Allar upplýsingar um mótaröðina má sjá hér fyrir neðan.
Við kynnum TrackMan helgarmótaröð GKG í boði Ping
Mótaröðin er innanfélagsmótaröð.
Ekkert gjald er fyrir þátttöku í mótinu, þú einfaldlega bókar og greiðir fyrir notkun á herminum. Aðeins er hægt að leika í hermum GKG í Íþróttamiðstöðinni og Kórnum.
Hægt verður að taka þátt á föstudegi til sunnudags og fer fyrsta mótið fram helgina 20.-22. okt. og það seinasta helgina 15.-17. des.
Alls verða 9 mót og gilda 3 bestu mótin í heildarkeppninni.
Glæsileg verðlaun í boði frá Ping fyrir 3 efstu sætin í karla- og kvennaflokki í heildarkeppninni.
Nándarverðlaun á tveimur par holum í hverju móti.
Ekki er nauðsynlegt að skrá sig, mótið verður til taks í TrackMan Tournaments flipanum sem valinn er í herminum sem leikið er í.
Keppnisskilmálar
Leikin er punktakeppni með TrackMan forgjöf. Nauðsynlegt er að hafa löglega Trackman forgjöf. Hún er fengin með því að hafa lágmark þrjá hringi skráða til forgjafar í Trackman kerfinu.
Keppt er í karla- og kvennaflokki.
Leiknar eru 9 holur í hverri umferð (seinni níu á hverjum velli).
Þrír bestu hringirnir telja í heildarkeppninni. Ef kylfingar eru jafnir þá gildir 4. hringurinn, svo 5. hringurinn og svo koll af kolli þangað til úrslit nást. Ef það nægir ekki ræður hlutkesti.
Stillingar:
Flatir: Medium
Flatir stimp: 9 fet
Holustaðsetningar: Medium
Vindur: Calm
Pútt: Auto Fixed (1 pútt <3 metra, 2 pútt 3,1-20 metra, 3 pútt >20 metra)
Mulligans:
Mulligans eru leyfðir ef um tæknilega villu er að ræða, t.d. “draugahögg”. Það mun sjást á skorkortinu ef mulligan er notaður og þarf leikmaður að senda skriflega skýringu til ulfar@gkg.is.
Heildarverðlaun í karla- og kvennaflokki:
1. Mr. Ping golfhermapoki að verðmæti 29.900 kr.
2. Ping bakpoki að verðmæti 14.900 kr.
3. Ping boltataska að verðmæti 7.900 kr.
Nándarverðlaun á tveimur brautum í hverju móti:
Ping kuldahúfa að verðmæti 5.900 kr.
Vellirnir
TrackMan golfvallarflóran býður upp á yfir 250 glæsilega golfvelli og því úr miklu úrvali að velja velli til leika á í mótaröðinni.
Við förum víðsvegar um heiminn og leikum strandvelli sem og skógarvelli. Allt eru þetta vellir sem kylfingar ráða við og geta notið þess að leika á.

