Íslandsmóti unglinga í höggleik lauk í gær og stóðu margir GKG kylfingar sig afar vel. Bestum árangri náðu Aron Snær Júlíusson sem hafnaði í 3. sæti eftir bráðabana í flokki 14 ára og yngri. Ragnar Már Garðarsson hafnaði einnig í 3. sæti í flokki 15-16 ára. Þess má geta að Ragnar hélt utan í dag til Ungverjalands til að taka þátt í European Young Masters, sem er gríðarlega sterkt unglingamót, en meðal fyrrum sigurvegara er Sergio Garcia.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Í flokki 17-18 ára náði Rúnar Örn Grétarsson sínum besta árangri í mótaröðinni og hafnaði í 4.-6. sæti, en hann leiddi sinn flokk eftir fyrsta hring eftir 69 högg. Tvær stúlkur tóku þátt frá GKG, Andrea Jónsdóttir og Særós Eva Óskarsdóttir, og kepptu þær í flokki 15-16 ára stúlkna. Þetta mót var mikilvægt fyrir reynslubankann hjá þeim og stóðu þær sig með mikilli prýði.

Einnig er gaman að geta þess að Pétur Andri Ólafsson fór holu í höggi í mótinu á 14. braut á öðrum hring. Einnig áttum við yngsta keppendann í mótinu, og líklegast í sögu Íslandsmótsins, en Sigurður Andri Garðarsson, aðeins 8 ára gamall, tók þátt og gerði sér lítið fyrir og hafnaði í 38. sæti af 49 keppendum í flokki 14 ára og yngri.

Nánari upplýsingar um árangur keppenda er að finna hér.