Ragnar Már Garðarsson gerði sér lítið fyrir og sigraði á Duke of York mótinu, sem lauk í dag á Royal Troon vellinum í Skotlandi. Mótið er gríðarlega sterkt og virt unglingamót, en einungis landsmeistarar unglinga fá þátttökurétt í mótinu. Meðal fyrrum keppenda eru margir af fremstu atvinnumönnum í dag, t.a.m. Rory McIlroy, sem hafnaði í öðru sæti á mótinu 2004. Hertoginn af Jórvík, Andrew prins er verndari mótsins. Guðrún Brá Björgvinsdóttir úr Keili, Íslandsmeistari stúlkna, var einnig meðal keppenda og hafnaði hún í 27. sæti af 53 keppendum.

Ragnar hóf lokahringinn í 7. sæti, 7 höggum á eftir Katja Pogacar frá Slóveníu, en átti frábæran lokahring á parinu, 72 höggum, en aðstæður hafa verið mjög erfiðar allt mótið, en mikill vindur gerði leikmönnum erfitt fyrir. Ragnar lék á 76-77-72, eða samtals 9 höggum yfir pari, og sigraði eftir bráðabana við Pogacar og Max Orrin frá Englandi. Pogacar datt út á fyrstu holu, en á þriðju holu náði Ragnar Már pari eftir að hafa lent í glompu við flöt, en Englendingurinn fékk skolla.

Frábær árangur og kórónar magnað tímabil hjá Ragnari, en hann hefur verið afar sigursæll á tímabilinu og var fyrir skömmu valinn efnilegasti kylfingurinn af Afreksnefnd GSÍ.

Tímabilinu er ekki lokið hjá Ragnari, en á mánudaginn heldur hann til Búlgaríu ásamt félaga sínum úr GKG, Emil Þór Ragnarssyni, og fjórum öðrum kylfingum sem skipa piltalandslið Íslands, en þeir munu keppa í undankeppni EM pilta.

Upplýsingar um mótið og skor er að finna hér.

Innilegar hamingjuóskir Ragnar Már!