Öldunganefnd GKG, skipuð þeim Gunnari Árnasyni, Tómasi Jónssyni og Kjartani Guðjónssyni, hefur útbúið viðmiðunarreglur sem munu gilda vegna vals í öldungasveit karla. Sveitakeppni öldunga fer að þessu sinni fram í Vestmannaeyjum, dagana 26.-28. ágúst.

Viðmiðunarreglurnar eru eftirfarandi:

Reglur um val  á karlasveit  GKG í  sveitakeppni eldri kylfinga 2011

Rétt til þátttöku hafa allir kylfingar sem verða 55 ára og eldri á árinu 2011.Það er hægt að taka þátt í 9 mótum og ræður röð kylfinga fjölda stiga sem þeir fá fyrir hvert mót. Leikið er af gulum teigum. Meðalskor í meistaramóti GKG gildir tvöfalt.

Gefin eru stig eins og notuð eru við val á landsliðum LEK, höggleikur án forgjafar. 1. sæti fær 180 stig, 2. sæti fær 160 stig, 3. fær 145 stig, 4. fær 140, 5. fær 135, 6. fær 130, 7. fær 125, 8. fær 120 og svo framvegis.

1. 14.5.  Opnunarmót GKG á Leirdalsvelli 
2. 28.5.  LEK mót á Hólmsvelli í Leiru
3. 2.6.    LEK mót á Vífilsstaðavelli, Leirdal
4. 4.6.    Opna Pingmótið á Hvaleyrarvelli
5. 15.6.  Miðvikudagsmótaröð GKG
6. 29.6.  Miðvikudagsmótaröð GKG
7. 15.7.  Meistaramót GKG,  meðalskor
8. 15.7.  Meistaramót GKG,  meðalskor
9. 27.7.  Miðvikudagsmótaröð GKG
10. 10.8.  Miðvikudagsmótaröð GKG

Af 10 hringjum telja 5 sem flest stig gefa hjá hverjum kylfingi. Þeir 6 kylfingar sem flest stig fá verða í sveitinni og auk þess hefur liðsstjórinn Kjartan Guðjónsson frjálst val um tvo.

Nánari upplýsingar veitir Gunnar Árnason, S: 697-9467, netfang gunnsol@hive.is