Samningar hafa líka verið gerðir um að afslættir verði áfram veittir félagsmönnum hjá GG Grindavík, GB Borgarnesi, GSG í Sandgerði og GOB í Bakkakoti. Þar fá félagsmenn 50% afslátt frá vallargjöldum. Í öllum tilvikum þurfa félagsmenn að framvísa gildu félagsskírteini sínu í GKG fyrir árið 2006, persónuskilríkjum og skrifa sig á þar til gerð eyðublöð á staðnum. Engar undanþágur verða heimilaðar frá þessari reglu.Félagsmenn geta nú þegar leikið Strandarvöll á Hellu þar sem hann er meira og minna opinn yfir vetrarmánuðina, dugar þá að sýna félagsskírteini 2005 þar til félagsskírteini 2006 verða tilbúin.
Ath ! Samningur þessi gildir ekki ef félagsmenn leika samstarfsvelli með hópum sem aðrir samningar gilda um eða samið hefur verið við sérstaklega við (t.d. fyrirtækjamót).
Með von um gleðilegt golfsumar