Félagsfundur apríl 2010  – Punktar frá Íþróttastjóra

Unglinga- og afreksstarfið

Þátttaka hefur vaxið jafn og þétt yfir sumarið, um 100 börn og unglingar sem æfa núna á vetraræfingum. Gerum ráð fyrir 150-180 krökkum í sumar, auk 400 barna á barnanámskeiðum GKG. Fyrir þennan mikla fjölda þarf marga þjálfara og leiðbeinendur. GKG hefur 3 PGA menntaða þjálfara (Úlfar, Derrick og Haraldur). Auk þess njótum við krafta Birgis Leifs og Sigmundar við þjálfun í sumar, en þeir hafa gríðarlega reynslu af keppnisgolfi eins og allir vita.

Afreksunglingar GKG fóru í æfingaferð í apríl í 5. sinn og gekk hún mjög vel eins og áður. GKG er heppið að eiga einstaklega góðan hóp af unglingum sem er sér og sínum til sóma innan vallar sem utan. Þetta eru efnilegir kylfingar en einnig efnilegt fólk sem á væntanlega eftir að vera félagar í GKG næstu áratugi og margir verða eflaust virkir í félagsstarfinu þegar sá tímapunktur kemur. Skýrsla vegna æfingaferðarinnar er á www.gkg.is.

Stefnumótun

Vinnuhópur, undir stjórn Gunnars Páls Þórissonar, var stofnaður í nóv. s.l. (Úlfar, Derrick, Sigmundur og Birgir Leifur). Markmiðið var að marka stefnu félagsins til lengri tíma og skilgreina starfssemi félagsins og festa það í sessi sem íþróttafélag. Ein af mikilvægum útkomum þessarar vinnu var útgáfa Gæðahandbókar GKG, sem er einskonar leiðarvísir fyrir þá sem koma að starfinu í félaginu. Einnig verður bókin aðgengileg fyrir almenna félagsmenn sem geta þá kynnst starfsseminni enn betur og séð hvað er í boði fyrir þá og fjölskyldumeðlimi sína.

Fræðslufundir

Fræðslufundur fyrir almenna félagsmenn var haldinn í mars við góðar undirtektir. Húsfyllir var og hlýddu viðstaddir á erindi hjá Andrési Davíðssyni sem fjallaði um mikilvægi þess að vera með klæðskerasaumaðan pútter; Úlfar og Derrick fjölluðu um markmiðasetningu og æfingaáætlanir; Birgir Leifur og Sigmundur fjölluðu um leikskipulag og mikilvægi holls mataræðis á golfhring. Áætlað er að halda 2-3 slíka fræðslufundir per ár og er næsti fræðslufundur fyrirhugaður fljótlega en þá fjallar Kjartan Bjarnason, yfirdómari GKG, um helstu reglur sem gott er fyrir alla kylfinga að kunna eða rifja upp fyrir leiktímabilið.

Námskeið í vetur hjá Úlfari og Derrick

Úlfar og Derrick buðu uppá námskeið fyrir almenna félagsmenn í vetur og nutu þau mikilla vinsælda. Ráðgert er að bjóða upp á fleiri námskeið í sumar.

Nýliðanámskeið

Framundan eru nýliðanámskeið sem ætluð eru nýjum félögum í GKG sem eru að stíga fyrstu skrefin og eru ekki komnir með forgjöf. Fyrsta námskeiðið hefst 11. maí og verða dagssetningar í boði auglýstar fljótlega á gkg.is.

Með kveðju, Úlfar Jónsson, Íþróttastjóri GKG