Sólon Baldvin Baldvinsson, 14 ára kylfingur í keppnishópi GKG, fór holu í höggi fyrir nokkrum dögum í æfingaferð GKG á Spáni. Sólon náði draumahögginu á 1. holu æfingavallar Hacienda del Alamo, og notaði Sólon 7-járn af 150 metra færi. “Ég hitti boltann mjög vel og hann leit vel út allan tímann. Boltinn lenti um fet fyrir aftan pinnann og spann til baka ofan í holu!”

Mörg glæsileg högg hafa verið slegin í ferðinni. Birgir Leifur náði albatros eins og greint hefur verið frá hér á gkg.is. Særós Eva Óskarsdóttir náði erni á Condato del Alhama vellinum á par 4 holu með því að “basketa” annað höggið beint í holu.

Seinasti hringurinn í æfingaferðinni verður leikinn í dag, og eflaust verða mörg glæsileg högg slegin til viðbótar.