Nú eru búin 3 mót af 9 sem telja til vals á sveit GKG sem keppir í Vestmannaeyjum 26. – 28. ágúst. Opnunarmót Leirdals sem fram átti að fara 14. maí var fellt niður. Tómas Jónsson hefur tekið afgerandi forystu, sigrað í öllum 3 mótunum sem fram hafa farið til þessa. Aðeins 4 hafa tekið þátt í öllum mótunum en aðrir 4 hafa verið með í tveimur.
Staðan núna er svona:
1. Tómas Jónsson 540 stig
2. Gestur Sæmundsson 480 –
3. Sighvatur Dýri Guðmundsson 425 –
4. Gunnar Árnason 400 –
5. Einar Breiðfjörð Tómasson 257,5 –
6. Sigurjón Gunnarsson 257,5 –
7. Óskar Óskarsson 250 –
8. Kjartan Guðjónsson 245 –
Næsta mót er miðvikudagsmót núna 15. júní og enn er fullt af stigum í boði eins og fram kemur í reglum um val á sveitinni.
Með því að smella hér er hægt að sjá reglur um val í öldungasveitir GKG.
Kveðja,
Gunnar Árnason
Skrásetjari