Spennan er mikil fyrir lokahringinn í Mánudagsmótaröðinni, Punktamóti GKG. Atli Ágústsson styrkti þó stöðu sína á toppinum með því að spila á 37 punktum. Fjórum punktum á eftir Atla er Óðinn Gunnarsson en hann á titilinn að verja frá því í fyrra. Í þriðja sæti er Eggert Ólafsson og er hann 10 punktum frá efsta sætinu. Margir keppendur eiga engu að síður möguleika á að næla sér í verðlaunasæti á lokadeginum sem verður spilaður mánudaginn 31. júlí.
Hægt er að sjá heildarstöðuna í mótinu með því að smella hér -> Punktamot GKG 2016 – Staðan eftir 6 umferðir af 7