5. umferð er lokið í Punktamótaröð GKG. Hér má sjá stöðuna: Punktamot GKG 2016 – Stadan eftir 5 umferdir

Þegar raðað er eftir tveimur bestu hringjum, sést að Hólmfríður Hilmarsdóttir er enn í efsta sæti með 77 punkta, en staða efstu manna hefur jafnast mikið og munar aðeins tveimur punktum á þeim sem eru í 3.-5. sæti og henni. Óðinn Gunnarsson, sigurvegarinn frá því í fyrra, lék draumahring í gær á 42 punktum og er nú kominn í 2. sætið með samtals 76 punkta í tveimur bestu hringjum.  Þrír aðrir fylgja svo fast á eftir með samtals 75 punkta í tveimur bestu hringjum af þeim þremur sem máli skipta í þessu móti.

Spennan er því að aukast og allt getur gerst!