Kæru kylfingar GKG

Sumaræfingum lýkur í þessari viku, enda eru skólar að hefjast í þeirri næstu. Æfingar hafa gengið vel fyrir sig að langmestu leyti í sumar og er það von okkar að krakkarnir hafi notið sín vel á golfvellinum og náð góðum framförum.
Æfingar halda þó áfram fram á haustið og verður boðið upp á æfingar samkvæmt neðangreindri töflu sem gildir frá mánudeginum 20. ágúst til fimmtudagsins 19. september. Ekkert æfingagjald er fyrir þessar æfingar. Frí verður síðan frá æfingum fram í nóvember en þá hefst vetrardagskrá GKG. Sú dagskrá verður kynnt í byrjun október.

Með bestu kveðjum,
f.h. þjálfara GKG og Unglinganefndar
Úlfar Jónsson, Íþróttastjóri GKG