Spilæfingar verða í sumar á föstudögum, og er mæting við golfskálann kl. 9. Þessar spilæfingar eru opnar öllum krökkum sem eru skráð í GKG og eru á sumaræfingunum.

Leikið verður í Mýrinni, af gull-teigunum, sem eru úti á brautunum. Fyrirkomulagið er eftirfarandi:

Mæting kl. 9 við golfskálann þar sem Haukur Már PGA leiðbeinandi tekur á móti krökkunum. Óþarfi er að skrá, bara mæta.

Skipt verður í tvö lið, fyrsti rástími kl. 9:30, fjórir leika saman í holli, tveir saman fyrir sitt lið.

Leikið verður með Texas Scramble fyrirkomulagi, þ.e. tveir og tveir leika saman. Báðir leikmenn slá af teig og velja betra höggið. Alltaf slá báðir leikmenn á sama stað og velja betra höggið þangað til boltinn er kominn í holu. Þetta er létt og skemmtilegt og streytulítið fyrirkomulag sem hefur gefist vel. Mögulegt er líka fyrir þau sem eru nýbyrjuð að vera varamenn í tveggja manna liði, og koma þá inná á ákveðnum brautum (sem Haukur ákveður).

Áætlað er að allir hafi lokið leik milli 12:30-13.

Vonandi sjáum við sem flest mæta.

Bestu kveðjur,

Þjálfarar GKG