Kæri félagi

Við viljum þakka ykkur fyrir frábæra skráningu í Bændaglímuna sem hefst á morgun, stuttur var fyrirvarinn en mótið fylltist á nokkrum klukkutímum.  Við hlökkum til að sjá ykkur öll á morgun og það verður gaman að eyða deginum með ykkur.  Minnum á að mæta stundvíslega kl 12 því þá verður dregið í tvö lið og bændur í ár eru engir aukvissar en þeir eru Venni Páer og Tóti draumur, ræst verður út á öllum teigum kl 13. Spilað verður 4 manna texas scramble og ætlar Gummi vallarstjóri að hleypa inn á nýju 18. Flötina!! Agnar framkvæmdarstjóri ætlar svo að slá til veislu í nýju íþróttahöllinni okkar þar sem Siggi vert mun bjóða upp á lamb og bernaise, þessu verður að sjálfsögðu skolað niður með einhverjum góðum veigum.

Frábær leið til að loka golfárinu og stefnan er að gera þetta að hefð um ókomin ár.

Með kveðju

Stjórn og starfsfólk GKG