Kæru félagar,

Nú er dagurinn farinn að styttast, haustið nálgast óðfluga. Það er engin leið að ná í björtu 18 holum eftir vinnu. Við höfum því ákveðið að skipta Leirdalsvelli í tvo níu holu velli frá og með mánudeginum 5. september. Við verðum því með 3 níu holu velli fram að lokun valla í haust

Völlur 1 –  Þeir sem skrá sig til leiks á golf.is á Leirdalinn eftir kl. 14:30 spila holur 1 til 3 og fara þaðan á 13. holu og enda á þeirri 18.

Völlur 2 – Á 4. holu í Leirdalnum höfum við sett upp boltarennu (ekki skráning á golf.is). Þeir sem velja þann hluta spila holu 4 til og með holu 12. Boltarenna virkar þannig að ef það er ekki laust á teiginn þegar mætt er, þá setur viðkomandi boltann sinn í rennuna. Þegar boltinn er kominn fremst í rennuna er viðkomandi næstur á teig.

Völlur 3 – Gamla góða Mýrin.

Það er von okkar og trú að þessi haust uppsetning á völlum okkar leggist vel í félagsmenn, markmiðið er að þó svo að dagurinn styttist þá geti sem flestir haldið áfram að spila golf … fram í rauðan kvöldroðann.

Staff og stjórn.