Í næstu viku (24.-27.júlí) hefst Íslandsmótið í golfi á Leirdalsvelli GKG. Vegna undirbúnings og framkvæmdar mótsins þarf að loka Leirdalnum og Mýri eins og hér segir:

Leirdalurinn lokar mánudaginn 21. júlí og Mýrin lokar miðvikudaginn 23. Júlí.  Lokað verður fyrir almenna umferð til og með sunnudagsins 27. júlí. Báðir vellir opna síðan aftur mánudagsmorguninn 28. Júlí.

Til að koma til móts við þessar lokanir hefur GKG gert eftirfarandi vinavallasamninga:

Dagana 21.-27. júlí er hægt að spila:

–          Golfklúbbur Grindavíkur                             Fríspil fyrir GKG meðlimi

–          Golfblúbburinn Brautarholti                      1.500 kr.-

Aðrir vinavellir GKG hægt er að spila alla daga sumarsins eru:

–          Golfklúbbur Selfoss                        1.000 kr.-

–          Golfklúbbur Borgarness               1.500 kr.-

–          Golfklúbburinn Leynir                  1.500 kr.-

–          Golfklúbbur Hellu                           1.500 kr.-

–          Golfklúbbur Suðurnesja               1.500 kr.-

–          Golfklúbburinn Geysi                   1.500 kr.-

Einnig minnum við á að á meðan mótinu stendur fá meðlimir í GKG 50% afslátt af vallargjöldum allra klúbba innan GSÍ

Mótsstjórn GKG