Ágætu félagar

Kópavogshluti Leirdalsvallar opnar laugardaginn 21 mai.

Vegna framkvæmda á holum 6, 10  og 11 á Leirdalsvelli viljum við biðja ykkur um að sýna mikla varkárni á nýframkvæmdarsvæðum í kring um flatirnar.
Við biðjum um að þið takið boltann út úr nýtyrfðum svæðum ef hægt er, annars að ganga mjög varlega um svæðið.

Þar sem hitastig er í algjöru lágmarki þá er allur gróður og þar með talið gras, mjög viðkvæmt.
Við vonum að þið sýnið skilning og aðstoðið okkur við að halda vellinum sem bestum.

Guðmundur Á Gunnarsson
Vallarstóri