
Í kringum áramót er hefð fyrir því að heiðra fremsta íþróttafólk í viðkomandi bæjarfélögum. Íþróttafélögin tilnefna sitt fremsta afreksfólk til íþróttakarls og íþróttakonu ársins. Einnig fær efnilegasta íþróttafólkið viðurkenningar, sem og Íslandsmeistarar og bikarmeistarar.
GKG tilnefnir eftirfarandi kylfinga í kjöri um íþróttakarl og konu í Kópavogi:
17 ára og eldri: Birgir Leifur Hafþórsson og Ingunn Gunnarsdóttir
13-16 ára: Særós Eva Óskarsdóttir og Ragnar Már Garðarsson
Í Garðabæ:
Guðjón Henning Hilmarsson og Ingunn Gunnarsdóttir
Efnilegust: Gunnhildur Kristjánsdóttir og Óðinn Þór Ríkharðsson
Tveir Íslandsmeistaratitlar hlotnuðust GKG kylfingum, en Ragnar Már sigraði í flokki 15-16 ára á Íslandsmótinu í höggleik, og sveit GKG 15 ára og yngri sigraði í Sveitakeppni GSÍ.
Við óskum okkar frábæra afreksfólki innilega til hamingju með tilnefningarnar og árangurinn á árinu.