Fyrsta mótið á unglingamótaröð GKG 2009 okkar fer fram á fimmtudaginn, 18.júní. Ákveðið hefur verið að framlengja skráningu út morgundaginn 17.júní þannig að sem flestir sem vilja geti tekið þátt. Smellið hér til þess að skrá ykkur. Við hvetjum alla sem eru að æfa og eru komnir með forgjöf að taka þátt í þessari skemmtilegu mótaröð.