GKG stóð fyrir veglegu háforgjafarmóti sem haldið var á Mýrinni 22. júní. Markmiðið með háforgjafarmótinu er að gefa kylfingum með hærri forgjöf kost á að keppa á móti sem hefur sömu umgjörð og almenn mót. Tveir dómarar voru til taks sem keyrðu um og leiðbeindu kylfingum og þrír aðilar voru til taks frá mótanefnd. Lekfyrirkomulag er 9. holu punktakeppni með fullri forgjöf en lágmarks grunnforgjöf er 28.0.

Stefanía Baldursdóttir gerði sér lítið fyrir og vann mótið á 25 punktum ásamt því að taka nándarverðlaunin á annarri holu sem hún fylgdi eftir með því að reka tæplega 8 metra pútt í fyrir fugli, sjá nánar hér.

Úrslit

  1. sæti – Stefanía Baldursdóttir – 25 punktar
  2. sæti – Steinar Karl Hlífarsson – 23 punktar
  3. sæti – Ásta Krstín Valgarðsdóttir – 21 punktur
  • Næst holu á 2. flöt, Stefanía Baldursdóttir, 7,85M
  • Næst holu á 9. flöt, Hjördís Gunnarsdóttir, 4,10M

Sjá má myndir frá mótinu með því að smella hér.