Sjöunda púttmóti í mótaröð GKG í Kórnun var haldið á sunnudag. Þátttaka var nokkuð góð, en 29 mættu til leiks. Jafnir í öðru og þriðja sæti voru Emil Þór Ragnarsson og Þorsteinn Þórsson. Þeir spiluðu báðir á 25 höggum en Emil hreppti annað sætið vegna betri árangurs á seinni níu holunum. Í efsta sæti var Jón Júlíusson á stórglæsilegu skori, 23 höggum.
Úrslit efstu manna voru:
1. Jón Júlíusson 23
2. Emil Þór Ragnarsson 25
3. Þorsteinn Þórsson 25
Verðlaunahafar geta nálgast verðlaun sín á skrifstofu GKG til Guðrúnar á skrifstofutíma.
Úrslit allra keppenda í 7. móti er hægt að sjá með því að smella hér. Smelltu hér til að sjá úrslit úr öllum mótunum.
Mótin eru til styrktar afreksstarfi GKG og þökkum við kærlega fyrir þátttökuna
Minnum á næsta mót á sunnudag, en hægt er að hefja leik kl. 12:00-14:30.
Kv. Gunnar Snær